05.04.2016
Þessa dagana er Leikfélag Hörgdæla að sýna leikritið Með
vífið í lúkunum og Freyvangsleikhúsið að sýna Saumastofuna. Af því tilefni
drógum við fram leikskrár frá þessum félögum.
14.03.2016
Laugardaginn 12. mars var þess minnst með ýmsum hætti að 100
ár eru liðin frá stofnun Alþýðusambands Íslands.
Samkvæmt fyrstu lögum félagsins var tilgangur sambandsins að
koma á samstarfi meðal íslenskra alþýðumanna á grundvelli jafnaðarstefnunnar,
efla og bæta líkamlegan og andlegan hag alþýðu og kjósa menn úr sambandinu til opinberra starfa
fyrir bæjar- og sveitarfélög.
Stofnfélög ASÍ voru sjö, öll úr Reykjavík og Hafnarfirði.
Fyrsta eyfirska félagið til þess að óska eftir inngöngu í
ASÍ var Verkamannafélag Akureyrar og var það í árslok 1917.
08.03.2016
Eftirfarandi skrifaði Sveinn Þórarinsson amtsskrifari í dagbók sína 8. mars 1866:
Logn og frostlaust veður blítt. Nú er landfastur ís fyrir öllu norðurlandi og hefir sumstaðar orðið töluverður höfrungafengur. Finsen vitjaði mín og var ég aumur. Austan póstur kom loksins. BF Sigurbirni.
Þegar Sveinn Þórarinsson skrifaði þessar línur bjó hann á Akureyri, í því húsi sem seinna átti eftir að vera þekkt sem Nonnahús enda umræddur Sveinn faðir Nonna. Finsen, sem Sveinn talar um, var Jón Finsen héraðslæknir í austurhéraði norðuramtsins. BF stendur fyrir bréf frá.
25.02.2016
Laugardagurinn 20. febrúar s.l. var dagur
tónlistarskólanna. Tónlistarskólinn á
Akureyri hélt upp á daginn með stórtónleikum þar sem fram komu hljómsveitin
200.000 naglbítar og um 400 nemendur skólans. Flutt voru lög naglbítanna ásamt
vel þekktum lögum, meðal annars í flutningi Helenu Eyjólfs en hún var
leynigestur tónleikanna.
22.02.2016
Árið 1915 tók Alex Quirist í Gautaborg lóð á leigu í Hrísey
og byggði all stóra síldarsöltunarstöð.
Stöðin samanstóð af tveimur húsum og bryggjum. Húsin settu mikinn svip á þorpið, sem myndast
hafði upp af svonefndu Sandshorni.