Fréttir

Afgreiðslutími um jól og áramót

Einhverjar breytingar verða á opnunartímanum hjá okkur um hátíðirnar. Við minnum á að fyrirspurnir má senda á netfangið okkar herak@herak.is

Sýning Héraðsskjalasafnsins fyrir norræna skjaladaginn 2024

Í byrjun nóvember setti starfsfólk safnsins upp sýningu

Lokað 19. og 20. september

Héraðsskjalasafnið á Akureyri verður lokað dagana 19 og 20. september,

Lokaður pakki opnaður

Í aðfangabók safnsins kemur fram að 31. maí árið 2000 hafi Dýrleif Skjóldal afhent bréfasafn sitt til varðveislu. Jafnframt kemur fram að safnið sé lokað og ekki megi opna það fyrr en árið 2024. Dýrleif Skjóldal hét fullu nafni Guðríður Dýrleif Kristjánsdóttir Skjóldal. Hún fæddist á Ytra-Gili í Hrafnagilshreppi 9. maí 1924. Hún var dóttir hjónanna Kristjáns Pálssonar Skjóldal (1882-1960) og Kristínar Gunnarsdóttur (1892-1968) en þau bjuggu á Ytra-Gili 1913-1960 og Kristín til 1961. Dýrleif ólst upp á Ytra-Gili en fluttist til Akureyrar 1961. Hún lést á Akureyri 25. desember 2022. Þegar í ársbyrjun fórum við að velta fyrir okkur hvenær best væri að opna pakkann, hvort tilefni væri til þess að gera það með viðhöfn, hvort við ættum að bjóða gestum til okkar af því tilefni o.þ.h. Í samráði við börn hennar var pakkinn var opnaður 8. maí s.l. og voru þau fyrstu gestirnir til þess að skoða innihaldið. Á næstu vikum verður safnið skráð og gert aðgengilegt en auk bréfasafnsins eru m.a. persónuleg skjöl og ferðaminningar í safninu.

Opnunartími um páska 2024

Safnið verður opið um páskahátíðina eins og hér segir.