Ráðstefna Félags héraðsskjalavarða á Íslandi
27.09.2013
Dagana 23. og 24. september sóttu skjalaverðir safnsins árlega ráðstefnu Félags
héraðsskjalavarða á Íslandi en hún var haldin i Kópavogi að þessu sinni, nánar til tekið í salnum á 3. hæð
í stúkunni við Kópavogsvöll.
Á ráðstefnunni voru nokkrar málstofur, þar sem tekið var á ýmsum þáttum í daglegu starfi safnanna. Má þar nefna
staðlaða skráningu skjalasafna og reglur um aðgengi að þeim, nýlegar útgáfur skjalasafna bæði prentuð rit og á vef, samstarf
við sögufélög og klasasamstarf héraðsskjalasafnanna um átak í söfnun skjala og margt fleira.
Þetta er þriðja ráðstefnan sem félagið heldur, árið 2011 var hún í Reykjavík og árið 2012 var hún haldin
á Akureyri. Þessi ráðstefna er vettvangur fyrir starfsmenn skjalasafnanna að kynnast og efla samstarf sín á milli. Einnig til að
árétta mikilvægi starfs þeirra fyrir sveitarfélögin, bæði hið stjórnsýslulega hlutverk safnanna sem snýr að varðveislu
skjala sveitarfélaganna og veitingu aðgengis að þeim og hið menningarlega hlutverk sem snýr að eflingu á þekkingu á sögu viðkomandi
héraða.
Kópavog heimsóttu af þessu tilefni fulltrúar frá 17 héraðsskjalasöfnum af öllu landinu, en söfnin eru nú 20 talsins.