11.12.2013
Þetta árið tekur Héraðsskjalasafnið þátt í jólasýningu Amtsbókasafnsins, Jólin á síðustu öld,
með því að leggja til jólakort úr einkaskjalasöfnum. Sýningin samanstendur af gömlum jólatímaritum, auglýsingum,
jólakortum og fleiru.
08.11.2013
Norræni skjaladagurinn er haldinn ár hvert annan laugardag í nóvember. Í ár er þema skjaladagsins „Fjársjóðir úr
fórum skjalasafnanna“ sem vísar til þess að í skjalasöfnunum eru merkilegar heimildir um sögu landsins og mannlíf. Þar getur hver og einn
fundið sinn fjársjóð.
04.10.2013
Héraðsskjalasafnið á Akureyri sýnir bleik skjöl í október til að minna á söfnunar- og árveknisátak
Krabbameinsfélags Íslands gegn brjóstakrabbameini. Sýningarkassinn er í afgreiðslu Amtsbókasafnsins.
Ekki er æskilegt að nota litaðan pappír fyrir langtímavarðveislu skjala, en skjölin á sýningunni eru frá árunum 1906-1978.
Skjölin eru af ýmsum toga, svo sem:
27.09.2013
Dagana 23. og 24. september sóttu skjalaverðir safnsins árlega ráðstefnu Félags
héraðsskjalavarða á Íslandi en hún var haldin i Kópavogi að þessu sinni, nánar til tekið í salnum á 3. hæð
í stúkunni við Kópavogsvöll.
Á ráðstefnunni voru nokkrar málstofur, þar sem tekið var á ýmsum þáttum í daglegu starfi safnanna. Má þar nefna
staðlaða skráningu skjalasafna og reglur um aðgengi að þeim, nýlegar útgáfur skjalasafna bæði prentuð rit og á vef, samstarf
við sögufélög og klasasamstarf héraðsskjalasafnanna um átak í söfnun skjala og margt fleira.
Þetta er þriðja ráðstefnan sem félagið heldur, árið 2011 var hún í Reykjavík og árið 2012 var hún haldin
á Akureyri. Þessi ráðstefna er vettvangur fyrir starfsmenn skjalasafnanna að kynnast og efla samstarf sín á milli. Einnig til að
árétta mikilvægi starfs þeirra fyrir sveitarfélögin, bæði hið stjórnsýslulega hlutverk safnanna sem snýr að varðveislu
skjala sveitarfélaganna og veitingu aðgengis að þeim og hið menningarlega hlutverk sem snýr að eflingu á þekkingu á sögu viðkomandi
héraða.
Kópavog heimsóttu af þessu tilefni fulltrúar frá 17 héraðsskjalasöfnum af öllu landinu, en söfnin eru nú 20 talsins.
29.08.2013
Í dag er Höfuðdagurinn en 29. ágúst hefur heitið svo frá því að Heródes lét hálshöggva Jóhannes
skírara að áeggjan konu sinnar og stjúpdóttur árið 31 e.kr. Gömul trú er sú að veðurfar muni breytast með Höfuðdegi
og segir svo frá því á einum stað: „Bregður þá vanalega veðráttu og helzt þá hið sama í 20 daga."
Akureyrarkaupstaður er 151 árs í dag og er þess skemmst að minnast að mikil hátíðahöld voru á Akureyri í tilefni af 150 ára
afmælinu árið 2012. Hægt er að rifja upp eldri fréttir hér á síðunni sem birtust vikulega af tilefni afmælisins og einnig er enn
hægt að skoða síðuna https://www.facebook.com/Akureyri150 en þar má sjá margt
fróðlegt og skemmtilegt um afmælisárið.
08.08.2013
Enn er haldið áfram undir yfirskriftinni ,,Skjöl eru skemmtileg“. Í ágústmánuði eru það skjöl frá árinu
1943 sem eru til sýnis á 1. hæðinni en fyrir valinu urðu námsbækur Pálma Brynjólfssonar frá Teigi. Pálmi var fæddur
26. febrúar 1931 en lést 2. apríl 1945, fjórtán ára að aldri.
Teigur var í Hrafnagilshreppi en skólaárið 1943-44 var kennt á tveimur stöðum í hreppnum, í Hvammi fyrir börn í nyrðri hlutanum
og í Hólshúsum fyrir börnin sunnar. Sigurður Gunnar Jóhannesson, seinna bóndi í Litla-Hvammi og Hrafnagili, annaðist kennsluna og Jón
Kristjánsson frá Espigrund kenndi söng. Kennt var annan hvorn dag á hvorum stað en skólahald hófst 14. og 15. október og lauk 17. og 18.
apríl.
24.06.2013
Samkvæmt gömlu íslensku tímatali hófst sólmánuður á mánudagi í 9. viku sumars, eða á tímabilinu 18. til 24.
júní. Jónsmessuna ber því upp á fyrsta dag sólmánaðar þetta árið. Björn Halldórsson í
Sauðlauksdal sagði m.a. um sólmánuð í riti sínu Atli, sem út kom í Hrappsey árið 1780, að fyrst í
sólmánuði færu menn á grasafjall og söfnuðu jurtum sem ætlaðar væru til lækninga.
19.06.2013
Í tilefni kvenréttindadagsins þann 19. júní verður boðið upp á fyrstu kvennasögugönguna um Oddeyrina. Saga kvenna á eyrinni er
mörgum hulin og því gefst hér kjörið tækifæri til að fá innsýn í líf og störf þeirra en konur á eyrinni
sáu t.d. um ýmiskonar rekstur um aldarmótin 1900 og fram á miðja 20. öld. Örn Ingi Gíslason mun leiða gönguna og varpa ljósi á
líf kvenna og ýmsar uppákomur, hefðir og venjur sem ríktu á eyrinni.
07.06.2013
Sunnudaginn 9. júní er Alþjóðlegi skjaladagurinn (International Archives Day) haldinn hátíðlegur í sjötta sinn. Skjalasöfn um allan
heim taka þátt með einum eða öðrum hætti og af þessu tilefni verður í dag, föstudaginn 6. júní kl. 14-16, opið hús
í eftirtöldum héraðsskjalasöfnum:
18.04.2013
Á síðasta ári var því fagnað með ýmsum hætti að 150 ár voru liðin frá því að Akureyri fékk
kaupstaðarréttindi. Í sannkölluðu afmælisskapi ákváðum við að halda áfram en horfa til safnsvæðisins alls og draga fram
úr geymslum skjöl sem ættu afmæli þetta árið. Skjölin eru sýnd mánuð í senn, í sýningarkassa á 1.
hæðinni undir yfirskriftinni Skjöl eru skemmtileg. Í janúar voru það 140 ára skjöl eða frá árinu 1873, í
febrúar 130 ára skjöl, í mars 120 ára og nú í apríl eru það 110 ára skjöl. Meðal þess sem er í kassanum
núna eru lög frá rjómabúi Svarfdæla, sveitarblaðið Tilraun úr Öngulsstaðahreppi og blaðið Lundur sem var handskrifað
blað á Oddeyri.