30.03.2012
Í tímans rás hafa átta einstaklingar verið kjörnir heiðursborgarar á Akureyri. Sá fyrsti var kjörinn 11. nóvember 1920 en
það var sr. Matthías Jochumsson, sem varð 85 ára þann dag.
Matthías var þjóðþekktur maður og eftir hann liggur mikið af sálmum, ljóðum og rituðu efni en sennilega er hann þekktastur fyrir
Lofsönginn og leikritið Útilegumennina (Skugga-Sveinn). Matthías fluttist til Akureyrar 1887 og þjónaði Akureyringum til fardaga 1900. Hann
lést 18. nóvember 1920.
23.03.2012
Í október 1959 birtu bæjarblöðin auglýsingu frá bæjarstjóra þar sem auglýst var samkeppni um merki fyrir Akureyri.
Merkið skyldi vera einfalt og á einhvern hátt táknrænt fyrir staðinn og var verðlaunum heitið fyrir hæfasta merkið.
16.03.2012
Meðal efnis sem barst á safnið árið 2011 var erfiljóð ort af Matthíasi Jochumssyni. Upphafið er svona:
Sigurbjörg Gunnarsdóttir
fædd 1820, dáin 1901
(undir nafni dóttur hennar)
Seinn er sólargangur
seinni nóttin þó,
síðan, móðir milda,
myrkvann yfir dró.
Ein og hrelld ég hými,
heimsins fjarri glaum,
ein með hryggð og angur,
ein með lífs míns draum.
09.03.2012
Hér er gripið niður í dagbók Sveins Þórarinssonar amtsskrifara fyrir réttum 150 árum.
"1. sd. í föstu 9. marts 1862
Sama veður [sólskin og sunnan frostgola]. Ég fór ofaná Akureyri og dvaldi þar um daginn og gisti um nóttina hjá Indriða gullsmið, drakk
nokkuð. Comediur fórust fyrir vegna dauðsfalls hjá Havsteen."
08.03.2012
Á alþjóðlegum baráttudegi kvenna 8. mars bauð Jafnréttisstofa upp á dagskrá á Hótel KEA helgaða 30 ára afmæli
Kvennaframboðsins á Akureyri. Héraðsskjalasafnið geymir
02.03.2012
Að beiðni undirbúningsnefndar vegna 100 ára afmælis kaupstaðarins teiknaði Kristinn G. Jóhannsson myndir af gömlum húsum í bænum.