Árið 1921 var byggð stífla í Glerá og í kjölfarið var byggð rafstöð og dreifikerfi um bæinn. Verktakar frá fyrirtækinu Elektro co. voru ráðnir til að leggja rafmagn í hús bæjarbúa og skilaði fyrirtækið uppdráttum að raflögnunum til rafveitunefndar. Þessir uppdrættir eru varðveittir á Héraðsskjalasafninu og voru myndaðir árið 2022. Alls voru myndaðir 274 uppdrættir en flestir þeirra eru ekki ársettir en voru líklega gerðir á árunum 1920-1935 en raflýsing hófst á Akureyri 30. september 1922. Hér að neðan er hægt að skoða stafræn afrit af þessum uppdráttum.
Um nákvæma tilvísun við rannsóknarvinnu bendum við notendum á að hafa samband við Héraðsskjalasafnið.