Á fundi bæjarstjórnar Akureyrar þriðjudaginn 21. febrúar 1961 var samþykkt tillaga bæjarráðs frá 15. febrúar um kosningu 5 manna nefndar (4ra auk bæjarstjóra) til að undirbúa og sjá um hátíðahöld í tilefni 100 ára kaupstaðarafmælis Akureyrar 29. ágúst 1962.
Á bæjarstjórnarfundinum hlutu þessir kosningu í nefndina:
Aðalmenn:
Magnús E. Guðjónsson [bæjarstjóri]
Bragi Sigurjónsson [bæjarfulltrúi]
Jakob Frímannsson [bæjarfulltrúi]
Jónas G. Rafnar [bæjarfulltrúi]
Rósberg Snædal [skáld]
Varamenn:
Stefán Stefánsson
Jón Sigurgeirsson
Stefán Reykjalín
Helgi Pálsson
Jón Ingimarsson
Til fróðleiks má bæta því við að í september 2009 skipaði bæjarráð undirbúningshóp vegna 150 ára afmælisins 2012. Í nefndinni áttu sæti Sigrún Jakobsdóttir, Úlfhildur Rögnvaldsdóttir og Helena Karlsdóttir. Tryggvi Þór Gunnarsson tók sæti Sigrúnar í júlí 2010. Það var svo ákveðið í bæjarráði í febrúar 2011 að undirbúningshópurinn yrði afmælisnefnd og fengi erindisbréf.