Það eru starfsmenn á menntasviði Reykjavíkurborgar og Borgarskjalasafni Reykjavíkur sem flytja fræðsluerindi, en menntasvið Reykjavíkurborgar hefur í samvinnu við Borgarskjalasafn og grunnskóla í Reykjavík unnið að gerð skjalavistunaráætlunar, leiðbeininga um skjalavörslu og málalykla fyrir grunnskóla borgarinnar.
Dagskrá fundarins:
9:00 Fjarfundabúnaður tengdur.
9:25 Þátttakendur boðnir velkomnir.
9:30 Erindi - Lög og reglugerðir er varða skjalavörslu og upplýsingarétt.
10:00 Erindi - Skjalavistunaráætlun grunnskóla og afhendingarskylda til héraðsskjalasafna.
10:30 Hlé.
10:50 Erindi - Leiðbeiningar um skjalavörslu og skráningarkerfi.
11:25: Erindi - Frágangur skjala og afhendingar til héraðsskjalasafna.
11:40 Erindi - Vinnuáætlun og eftirfylgni.
11:55 Fundi slitið.
Námskeiðið verður auglýst nánar þegar nær dregur og þá munu héraðsskjalasöfnin á hverjum stað veita upplýsingar. Hér fylgja glærur frá námskeiðinu sem haldið var 24. ágúst.
Lög og reglugerðir er varða skjalavörslu og upplýsingarétt
Leiðbeiningar um skjalavörslu og skráningarkerfi
Skjalavistunaráætlun grunnskóla Reykjavíkurborgar
Leiðbeiningar um skjalavörslu fyrir grunnskóla Reykjavíkurborgar