Sýning Héraðsskjalasafnsins í anddyrinu í Brekkugötu 17 vekur mikla athygli. Á sýningunni eru tekin fyrir hús á Akureyri og
taldar upp þær verslanir sem þar hafa verið starfræktar. Upptalningin er engan veginn tæmandi og því eru bæjarbúar og aðrir gestir
beðnir um að bæta við og leiðrétta ef þeir vita betur.