Bréf Björgvins Guðmundssonar tónskálds

Fimmtudaginn 20. okt. afhenti Bjarki Sveinbjörnsson, tónlistarfræðingur Ph.d. fyrir hönd Tónlistarsafns Íslands, safninu nokkur bréf sem Björgvin Guðmundsson tónskáld skrifaði vini sínum Guttormi J. Vigfússyni skáldi í Lundar, Manitoba.
Bréfin skrifaði Björgvin þegar hann var við nám við Royal College of Music í London á árunum 1926-1928. Í bréfunum lýsir hann m.a. upplifun sinni af lífi og listum í London, honum líst ekki meira en svo á þróun mála í listheiminum og talar t.d. um að hver sönghöllin eftir aðra sé lögð niður og breytt í hnefaleikahús, jafnvel Albert Hall.  Norma Guttormsson í Winnepeg afhenti Bjarka þessi bréf til varðveislu á Tónlistarsafni Íslands, en hann taldi þau betur komin í Héraðsskjalasafninu á Akureyri þar sem önnur gögn frá Björgvin og Kantötukórnum eru varðveitt.